Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fös 01. júní 2018 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Öðru tilboði Brighton í McNair hafnað
Mynd: Getty Images
Brighton ætlar sér að klára kaupin snemma í ár en þeir hafa nú þegar klárað tvenn kaup og eru nú að reyna klára þau þriðju.

Tilboði þeirra í Paddy McNair var hafnað í dag en það er talið hafa hljóðað upp á 3.5 milljónir punda, Sunderland hafnaði fyrr í vikunni tilboði í McNair frá Brighton sem hljóðaði upp á 2 milljónir punda.

Samkvæmt heimildum Sky Sports vill Sunderland fá 4 milljónir punda fyrir þennan 23 ára gamla varnarmann.

Brighton sem var nýliði í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu sem lauk í maí hélt sér nokkuð örugglega uppi en 15. sæti var niðurstaðan hjá þeim.
Athugasemdir
banner
banner