Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
„Vonandi getur maður kennt þessum strákum eitthvað"
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
   mið 13. júní 2018 20:56
Daníel Geir Moritz
Óli Jó: Vildum vinna leikinn fyrir Rasmus
Óli Jó ánægður með þrjú stig
Óli Jó ánægður með þrjú stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var svo sem ekki mikið að gerast í þessum leik en stigin þrjú eru góð og ég fagna þeim,“ sagði Ólafur Jóhannesson eftir 0-1 sigur Vals á ÍBV í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  1 Valur

Rasmus Christiansen fótbrotnaði í leiknum og varð öllum á vellinum, hvort sem menn voru í takkaskóm eða uppi í stúku, verulega brugðið. „Ég veit ekkert. Hann var bara sendur suður með flugvél og hann er illa farinn. Þetta var ógeðslegt en þetta gerist stundum í fótbolta. Ásetningurinn er enginn, þetta er algjört óviljaverk og því miður þá gerist þetta og er þetta partur af leiknum. En Rasmus kemur sterkur til baka. Við töluðum um það í hálfleik að fara út í seinni hálfleikinn og vinna hann fyrir Rasmus!

Leikurinn var ekki sá fjörugasti og var Óli sammála því. „Mér fannst nánast ekkert gerast í þessum leik. Hann var rólegur og hægur. Mér fannst hann mjög skemmtilegur, við unnum hann 1-0! En það var ekki mikið að gerast í honum.“

Björn Daníel Sverrisson hefur æft með Val að undanförnu og hafði Óli sínar skýringar á því. „Nú eru atvinnumenn á landinu og þeir æfa með hinum og þessum liðum. En það er ekki þar með sagt að þeir séu að skipta um félag. En það er rétt. Þeir hafa komið 2-3 atvinnumenn á æfingar hjá okkur. Hann er ekki að koma í Val. Hann er samningsbundinn í Danmörku. Það er gaman fyrir alla að fá að vera með Val. Jafnvel fyrir ykkur gæti það verið gaman,“ sagði Óli glaður í bragði.
Athugasemdir
banner
banner
banner