Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 07. október 2017 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sagði að Svíar gætu aldrei unnið 8-0 - Það gerðist síðan
Dick Advocaat er landsliðsþjálfari Hollands.
Dick Advocaat er landsliðsþjálfari Hollands.
Mynd: Getty Images
Dick Advocaat landsliðsþjálfari Hollands, lét út úr sér ummæli í síðustu viku sem komu heldur betur í bakið á honum í dag.

Á blaðamannafundi hollenska landsliðsins fyrir um viku síðan fékk Advocaat þessa spurningu. "Hvað myndir þú segja ef að Svíþjóð myndi vinna Lúxemborg 8-0?"

Svar hans var: „Svíþjóð mun ekki vinna 8-0 gegn Lúxemborg, þetta er heimskuleg spurning, 8-0 það er ómögulegt," sagði Advocaat.

Það er ljóst að spurning blaðamannsins var ekki heimskuleg eins og Advocaat hélt fram því Svíþjóð sigraði Lúxemborg í dag 8-0.

Hér að neðan má sjá brot frá fyrrnefndum blaðamannafundi.





Athugasemdir
banner
banner
banner