Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 21:37
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: ÍR skellti Aftureldingu í toppslag
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
ÍR 3 - 0 Afturelding
1-0 Lovísa Guðrún Einarsdóttir ('21 )
2-0 María Marín Asensio ('23 )
3-0 María Marín Asensio ('68 )

ÍR og Afturelding áttust við í eina leik kvöldsins í B-deild Lengjubikars kvenna og unnu Breiðhyltingar góðan sigur á heimavelli.

Lovísa Guðrún Einarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 21. mínútu og tvöfaldaði María Marín Asensio forystuna skömmu síðar.

María Marín var aftur á ferðinni í seinni hálfleik þegar hún skoraði sitt annað mark til að gera út um viðureignina. Lokatölur 3-0 fyrir ÍR.

Afturelding er áfram á toppi B-deildar með níu stig eftir fjórar umferðir, á meðan ÍR er í öðru sæti með níu stig eftir fimm umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner