Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 14. mars 2024 15:21
Elvar Geir Magnússon
Safamýrin verður heimavöllur Grindavíkur í sumar (Staðfest)
Lengjudeildin
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, og Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, voru kátir þegar þeir handsöluðu samkomulagið á Víkingssvæðinu í Safamýri í dag.
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, og Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, voru kátir þegar þeir handsöluðu samkomulagið á Víkingssvæðinu í Safamýri í dag.
Mynd: Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur og Grindavík hafa gert samkomulag um að meistaraflokkar Grindavíkur leiki og æfi á Víkingssvæðinu í Safamýri í sumar.

Völlurinn var heimavöllur Fram á meðan verið var að byggja aðstöðuna í Úlfarsárdal og síðan léku Kórdrengir heimaleiki sína þar. Svæðið er nú komið í hendur Víkings.

Víkingur lánar Grindavík, endurgjaldslaust, aðstöðuna í sumar en Reykjavíkurborg leggur til nýja vallarklukku og stúkusætum í eigu ÍBR verður komið upp við völlinn.

Fram kemur í fréttatilkynningu að meistaraflokkar Grindavíkur, í karla og kvennaflokki, munu æfa á grasæfingasvæðinu í Safamýri en spila leiki sína í Lengjudeildunum á gervigrasvellinum.

Grindavík mun leggja til vallarstjóra og starfsmenn við íþróttamannvirkin í Safamýri en fá á móti skrifstofuaðstöðu og annan aðgang að mannvirkjunum.

„Lagt er upp með að fyrsti leikur beggja liða, karla og kvenna, í Lengjudeildunum verði leiknir í Víkinni við Íslandsmeistara umgjörð og mun Knattspyrnudeild Víkings manna miða- og veitingasölu til að Grindvíkingar geti notið dagsins í stúkunni. Þá mun allur ágóði af veitingasölunni renna óskiptur til Grindvíkinga, sem eiga alla miðasölu og fylla vonandi völlinn í bæði skiptin," segir í tilkynningunni.

Mikil óvissa er með stöðuna í Grindavík vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og í nokkurn tíma verið ljóst að félagið gæti að öllum líkindum ekki spilað í bæjarfélaginu í sumar.

,„Það er félaginu og Víkingum öllum ákaflega ánægjulegt að geta aðstoðað Grindvíkinga með þessu hætti í sumar. Frá fyrsta samtali höfum við lagt áherslu á að leita lausna með Grindvíkingum en til þess þurfti einnig sterka aðkomu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg. Við erum þakklát fyrir það hversu vel var tekið í þetta frá fyrsta fundi," segir Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings.

„Við í Grindavík erum afar þakklát Víking fyrir allt saman. Við erum komin með heimavöll í sumar og getum þurrkað þá óvissu út og gefið allt í botn fyrir komandi keppnistímabil. Bæði liðin okkar ætla sér langt og þetta er stórt skref fyrir okkur. Víkingur í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg eiga hrós skilið fyrir þetta. Engin orð fá lýst því hversu þakklát við erum," segir Þorleifur Ólafsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner