Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. mars 2024 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ásgeir Frank fær fyrrum liðsfélaga sinn í markið (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvíti riddarinn hefur verið duglegur að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og voru Mosfellingar að tryggja sér þjónustu Sindra Snæs Vilhjálmssonar, sem er fæddur 2002.

Sindri Snær er alinn upp hjá FH en lék síðast fyrir Kórdrengi í Lengjudeildinni sumarið 2021. Hann á einnig leiki að baki fyrir yngri flokka Breiðabliks, auk þess að hafa varið mark Augnabliks í níu leikjum í 3. deildinni.

Ásgeir Frank Ásgeirsson, spilandi þjálfari Hvíta riddarans, var liðsfélagi Sindra hjá Kórdrengjum og eru þeir nú endursameinaðir.

Hvíti riddarinn bjargaði sér frá falli úr 3. deildinni í fyrra og stefnir hærra í ár.
Athugasemdir
banner