Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fös 15. mars 2024 15:00
Auglýsingar
Ný heimildarmynd um Ásgeir Elíasson - Maðurinn með hattinn
Mynd: Aðsend
Heimildarmyndin Ásgeir - Maðurinn með Hattinn verður sýnd í Sambíóunum Kringlunni miðvikudaginn 20. mars kl. 18:00.

Ásgeir Elíasson var einn sigursælasti knattspyrnuþjálfari landsins en hann lést fyrir aldur fram 2007.

Hann gerði Fram að stórveldi og vann glæsta sigra með íslenska landsliðinu.

Samferðamenn hans fara í gegnum sögu hans, innan sem utan vallar, þjálfun, vináttu, keppnisskap, fjölskyldustemningu og þá sýn að það yrði að vera gaman í fótbolta.

Framleiðendur eru Hermann Guðmundsson og Logi Bergmann.
Athugasemdir
banner
banner