Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 15. mars 2024 19:04
Ívan Guðjón Baldursson
Postecoglou: Meistaradeildarsæti breytir ekki miklu
Mynd: Getty Images
Tottenham er sprellifandi í baráttunni um síðasta meistaradeildarsætið eftir sannfærandi sigur gegn Aston Villa á Villa Park á dögunum.

Tottenham heimsækir Fulham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni á morgun og geta lærisveinar Ange Postecoglou komist upp í fjórða sætið með sigri.

„Það væri frábært að komast í meistaradeildina en það breytir í raun engu í okkar starfi. Við munum halda áfram að vinna að okkar markmiðum eins og áður," segir Postecoglou.

„Við vitum hvaða stöður við þurfum að styrkja, það breytist ekki hvort sem við náum meistaradeildarsæti í ár eða ekki."

Tottenham er með 53 stig eftir 27 umferðir af úrvalsdeildartímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner