Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 15. mars 2024 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Merino og Zakharyan afgreiddu Cádiz
Mynd: EPA
Real Sociedad 2 - 0 Cádiz
1-0 Mikel Merino ('28)
2-0 Arsen Zakharyan ('68)

Real Sociedad tók á móti Cádiz CF í eina leik kvöldsins í spænsku deildinni.

Mikel Merino, fyrrum miðjumaður Newcastle, skoraði eina markið í fyrri hálfleik og innsiglaði Arsen Zakharyan sigurinn í síðari hálfleik, aðeins tveimur mínútum eftir innkomu sína af bekknum.

Leikurinn var nokkuð jafn fyrir leikhlé en heimamenn voru sterkari í síðari hálfleik og verðskulduðu að lokum sigurinn.

Lokatölur urðu 2-0 fyrir Sociedad, sem er í evrópusæti með 46 stig eftir 29 umferðir. Cádiz er áfram í fallsæti.

Sociedad er níu stigum frá meistaradeildarbaráttunni þegar níu umferðir eru eftir af tímabilinu. Cadiz er í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner