Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 15. mars 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valinn af Heimi og U19 landsliði Englands á sama tíma
Bailey Cadamarteri.
Bailey Cadamarteri.
Mynd: Getty Images
Heimir Hallgrímsson valdi í gær Bailey Cadamarteri, framherja Sheffield Wednesday á Englandi, í landsliðshópinn sinn hjá Jamaíku.

En Heimir er ekki sá eini sem valdi Cadamarteri í landsliðshóp því í dag var það tilkynnt að hann væri einnig valinn í U19 landslið Englendinga.

Cadamarteri er fæddur í Yorkshire á Englandi en hann á ættir að rekja til Jamaíku.

Heimir ákvað að velja hann í hóp sinn fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar en The Star í Sheffield segir að leikmaðurinn ætli að velja frekar að fara í U19 landslið Englands að þessu sinni.

Cadamarteri mun áfram geta spilað fyrir Jamaíku, svo lengi sem hann spilar ekki keppnisleiki fyrir A-landslið Englands. Þessi efnilegi leikmaður hefur spilað mikilvægt hlutverk fyrir Sheffield Wednesday í Championship-deildinni að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner