Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Víkingur Ó. tók annað sætið af Árbæ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ó. 4 - 2 Árbær
0-1 Ástþór Ingi Runólfsson ('11 )
1-1 Luis Romero Jorge ('14 )
2-1 Luke Williams ('33 )
3-1 Luke Williams ('64 )
4-1 Eyþór Örn Eyþórsson ('73 )
4-2 Jordan Chase Tyler ('79 )

Víkingur Ólafsvík og Árbær áttust við í síðasta leik dagsins í B-deild karla í Lengjubikarnum og úr varð spennandi slagur.

Árbæingar tóku forystuna í fyrri hálfleik en Ólsarar snéru taflinu við fyrir leikhlé og leiddu 2-1.

Luke Williams skoraði tvennu fyrir heimamenn í Ólafsvík sem voru komnir með þriggja marka forystu á 73. mínútu.

Jordan Chase Tyler minnkaði muninn aftur niður í tvö mörk fyrir Árbæ en þar við sat og urðu lokatölur 4-2.

Víkingur fer uppfyrir Árbæ í toppbaráttu riðilsins með þessum sigri. Ólsarar eru þar í öðru sæti með átta stig á meðan Árbær situr eftir í þriðja sæti með sex stig fyrir lokaumferðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner