Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 17. mars 2024 16:24
Aksentije Milisic
Sjáðu mörkin: McTominay kom Man Utd í forystu en Liverpool svaraði
Mynd: Getty Images

Þessa stundina er í gangi leikur Manchester United og Liverpool og er staðan 1-2 fyrir Liverpool þegar flautað hefur verið til hálfleiks.


Scott McTominay kom United í forystu en Liverpool náði að skora tvö mörk seint í uppbótartímanum. Alexis Mac Allister átti þá skot sem fór í Kobbie Mainoo og þaðan í netið.

Stuttu síðar skoraði Mohamed Salah af stuttu færi eftir að Andre Onana hafði varið skot út í teiginn. Fjörugur leikur í gangi á Old Trafford en bæði lið hafa átt færi til að skora fleiri mörk.

Sjáðu markið hjá McTominay hér.
Sjáðu markið hjá Mac Allister hér.
Sjáðu markið hjá Salah hér.


Athugasemdir
banner
banner