Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   sun 17. mars 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu ótrúlegt klúður Timo Werner gegn Fulham
Werner er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar í níu leikjum með Tottenham.
Werner er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar í níu leikjum með Tottenham.
Mynd: EPA
Fulham lagði Tottenham að velli 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í gær í opnum og skemmtilegum slag.

Fulham nýtti færin sín talsvert betur heldur en gestirnir sem komust þó oft nálægt því að skora.

Þeir komust næst því þegar Timo Werner fékk boltann í algjöru dauðafæri, þar sem hann stóð aðeins tvo metra frá opnu marki.

Sendingin til Werner var mjög föst og tókst sóknarmanninum ekki að stýra boltanum í netið, heldur náði hann að setja boltann framhjá markinu á einhvern ótrúlegan hátt.

Þetta verður að flokkast sem eitt af verri klúðrum enska úrvalsdeildartímabilsins hingað til.

Staðan var 3-0 þegar atvikið átti sér stað á 69. mínútu leiksins og hefði mark mögulega getað kveikt í endurkomu hjá Tottenham.

David Datro Fofana klúðraði einnig ótrúlegu dauðafæri í 2-1 sigri Burnley gegn Brentford í gær. Atvikin má sjá hér fyrir neðan.

Timo Werner miss vs Fulham 69'
byu/50lipa insoccer


David Datro Fofana (Burnley) incredible open goal miss vs Brentford 43'
byu/Imbasauce insoccer


David Datro Fofana (Burnley) steals ball from an unsuspecting Flekken and slips vs Brentford 51'
byu/SparksV insoccer

Athugasemdir
banner
banner
banner