Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 18. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe komið að meira en 450 mörkum á ferlinum
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, sóknarmaður Paris Saint-Germain, náði merkum áfanga á ferlinum í gær.

Mbappe, sem er 25 ára gamall, skoraði þrennu og lagði upp eitt mark í 6-2 sigri PSG á Montpellier.

Hann hefur nú komið að 453 mörkum á ferlinum með bæði félags- og landsliði og það í aðeins 432 leikjum.

Framherjinn hefur skorað 323 mörk og gefið 130 stoðsendingar.

Mbappe spilaði sinn fyrsta leik aðeins 16 ára gamall með Mónakó og skoraði sitt fyrsta mark ári síðar.

Frakkinn mun væntanlega yfirgefa PSG í sumar og ganga í raðir Real Madrid á Spáni.


Athugasemdir
banner
banner
banner