Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. mars 2024 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Messi ekki með Argentínu vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er ekki með argentínska landsliðshópnum sem spilar æfingalandsleiki við El Salvador og Kosta Ríka í landsleikjahlénu sem er framundan.

Messi meiddist í sigri Inter Miami gegn Nashville í MLS deildinni á dögunum og þarf næstu viku til að jafna sig.

Messi er 36 ára gamall og er búinn að skora fimm mörk og gefa tvær stoðsendingar í fimm leikjum með Inter á nýju tímabili.

Messi er fyrirliði Argentínu og leiddi landsliðið til sigurs á síðasta heimsmeistaramóti, þar sem Argentína lagði Frakkland að velli eftir vítaspyrnukeppni á HM í Katar.
Athugasemdir
banner
banner