Sky Sports hefur tekið saman lista með tíu stjörnum sem gætu komið í ensku úrvalsdeildina úr öðrum stórum deildum í sumar. Skoðum listann!
Gareth Bale (Real Madrid) - Bale gæti verið á leið aftur í enska boltann í sumar. Líklegasti áfangastaðurinn er Manchester United.
Pierre-Emerick Aubameyang (Borussia Dortmund) - Með 29 mörk í Bundesligunni á tímabilinu. PSG er líklegasti áfangastaðurinn en Man City hefur líka áhuga.
Andrea Belotti (Torino) - 25 mörk með Torino hafa vakið áhuga á Englandi. Manchester United hefur meðal annars skoðað leikmanninn.
Antoine Griezmann (Atletico Madrid) - Efstur á óskalista Manchester United til að fylla skarð Zlatan Ibrahimovic.
Alexandre Lacazette (Lyon) - Atletico Madrid ætlar að reyna að krækja í framherjann knáa í sumar en Arsenal og Liverpool hafa líka áhuga.
Kylian Mbappe (Mónakó) - Hinn 18 ára Mbappe hefur slegið í gegn með Mónakó. Manchester liðin gætu reynt við hann í sumar.
Alvaro Morata (Real Madrid) - Hefur skorað tuttugu mörk á tímabilinu þrátt fyrir að eiga ekki fast sæti í byrjunarliðinu. Chelsea hefur mikinn áhuga.
Marco Reus (Borussia Dortmund) - Mörg ensk félög hafa áhuga á Reus. Þar á meðal eru Arsenal og Chelsea.
James Rodriguez (Real Madrid) - Hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarna daga.
Athugasemdir