Meistaraflokkur karla hjá Breiðabliki er þessa stundina í æfingaferð á Alicante-svæðinu á Spáni.
Það hefur verið til fyrirmyndar að fylgjast með Blikum á samfélagsmiðlum síðustu daga, hvort sem það er á TikTok eða á Instagram.
Arnar Laufdal Arnarsson, leikmaður Augnabliks, fylgdi liðinu út og hefur hann verið að gefa stuðningsmönnum sem og öðrum innsýn í æfingaferðina á samfélagsmiðlum.
Í dag var birt skemmtilegt myndband á samfélagsmiðlum Blika þar sem Eyþór Aron Wöhler, sóknarmaður liðsins, sýnir frá hóteli liðsins á Spáni. Hótelið sem um ræðir er La Finca Resort sem er fimm stjörnu hótel en það eru frábærar aðstæður til fótboltaiðkunnar.
Eyþór fer á kostum í þessu mjög svo fyndna myndbandi og fær liðsfélaga sína til dæmis í eftirhermur. Viktor Karl Einarsson tekur Gumma Ben og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliðinn, tekur sjálfan Borat einstaklega vel.
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan, óhætt að mæla með því.
Athugasemdir