Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 20. mars 2024 10:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta verður það versta sem þú getur nokkurn tímann gert"
Gareth Southgate.
Gareth Southgate.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar á borð við Talksport og Daily Mail sögðu frá því í gær að Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, væri efsti maður á blaði hjá Manchester United ef ákvörðun verður tekin um að láta Erik ten Hag fara. Það er helsta slúðrið á Bretlandseyjum þessa stundina.

Engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi framtíð Ten Hag en það er í höndum Sir Jim Ratcliffe, sem eignaðist 27,7 prósent hlut í United í síðasta mánuði.

Það hefur verið umræða um það að Ratcliffe vilji fá nýjan mann inn og er Southgate sagður fyrsti kostur. Hann er sagður í miklum metum hjá Ratcliffe sem og hjá Dan Ashworth, sem er að taka við sem yfirmaður fótboltamála hjá United. Ashworth þekkir Southgate vel eftir að hafa áður unnið hjá enska knattspyrnusambandinu.

En Southgate er ekki í eins miklum metum hjá mörgum stuðningsmönnum Man Utd. Breski útvarpsmaðurinn Andy Goldstein er einn þeirra, en hann er alls ekki hrifinn af þeirri hugmynd að landsliðsþjálfarinn núverandi taki við United.

„Sir Jim Ratcliffe, ef þú ert að hlusta... það verður allt brjálað. Þetta verður það versta sem þú getur nokkurn tímann gert. Ég mun halda með einhverju öðru liði ef þetta gerist. Old Trafford verður tómur. Farðu til Liverpool, Gareth. Það er frábært tækifæri...," sagði Goldstein þegar hann ræddi um möguleikann á að Southgate myndi taka við hans uppáhalds liði.

Southgate hefur stýrt Englandi frá 2016 og hefur hann farið með liðið í undanúrslit á HM og í úrslitaleikinn á EM, en hann hefur oft verið gagnrýndur fyrir ákvarðanir sem hann hefur tekið í starfinu. Er hann rétti maðurinn fyrir Man Utd? Það eru ekki allir sannfærðir um það.


Athugasemdir
banner
banner
banner