Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 21. janúar 2015 09:00
Alexander Freyr Tamimi
Rodgers um vetrarfrí Sterling: „Líf hans og ferill í húfi“
Það hefur verið mikið álag á Sterling.
Það hefur verið mikið álag á Sterling.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur engan áhuga á að hlusta á þá sem gagnrýna hann fyrir að hafa gefið Raheem Sterling vetrarfrí.

Sterling skellti sér til Jamaíku í smá frí eftir annasama jólatörn og er nú kominn endurnærður til baka.

,,Líf stráksins og ferill er í húfi. Fólk mun tala um þetta en ég hugsa bara um hans hagsmuni," sagði Rodgers.

,,Það sást í kvöld að hann var ferskari. Kannski ekki endilega líkamlega, en andlega."

,,Það hefur verið sett svo ótrúlega mikil pressa á hann svona snemma á ferlinum. Það er enginn vafi á því að hann er einstaklega hæfileikaríkur ungur leikmaður."


Athugasemdir
banner
banner