Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 21. maí 2017 18:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Blaðamannafundur Mourinho entist í 11 sekúndur
Mourinho var fljótur að forða sér.
Mourinho var fljótur að forða sér.
Mynd: Getty Images
Blaðamannafundur Jose Mourinho, stjóra Manchester United, eftir 2-0 sigur á Crystal Palace í dag entist í aðeins 11 sekúndur!

Mourinho mætti inn í herbergið þar sem blaðamannafundurinn fór fram, en margir blaðamenn voru enn staddir í blaðamannastúkunni að horfa á leikmenn taka heiðurshring eftir síðasta leik tímabilsins.

Fjölmiðlafulltrúinn spurðu strax að því hvort að það væru einhverjar spurningar, en engar spurningar komu.

Þá var Mourinho fljótur að forða sér.

„Gott, bless strákar," sagði Mourinho og fór svo.

Blaðamannafundurinn var aðeins 11 sekúndur, en Mourinho gaf ekki kost á sér í viðtal hjá Sky Sports. Hann ræddi stuttlega við sjónvarpsstöð Man Utd, en þar sagði hann ekki mikið.

„Ekki spyrja mig of mikið vegna þess að núna er ég í úrslitaleik. Leyfið mér að fara heim, ég er í úrslitaleik núna."



Athugasemdir
banner
banner