Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 10:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bjarni Guðjón í U21 fyrir Eggert Aron
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Breyting hefur verið gerð á íslenska u21 árs landsliðshópnum fyrir leik liðsins gegn Tékkum í undankeppni EM.


Leikurinn fer fram úti í Tékklandi en Ísland vann fyrri leikinn hér heima 2-1.

Eggert Aron Guðmundsson getur ekki tekið þátt í verkefninu vegna meiðsla. Bjarni Guðjón Brynjólfsson kemur inn í hans stað en hann hefur ekki leikið með u21 árs liðinu áður.

Ísland er í þriðja sæti riðilsins með sex stig eftir þrjá leiki á meðan Tékkland er í því fjórða með tvö stig eftir þrjá leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner