Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 23. mars 2024 16:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guðrún lék í þrettán marka sigri - Ótrúlega dramatískur sigur hjá Selmu Sól
Guðrún Arnardóttir
Guðrún Arnardóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selma Sól Magnúsdóttir var í byrjunarliði Nurnberg sem vann mikilvægan sigur gegn Köln í þýsku deildinni í dag.


Nurnberg hafði aðeins fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum áður en kom að leiknum í dag en liðið var fjórum stigum frá öruggu sæti.

Þetta leit ansi vel út fyrir Nurnberg framan af en staðan var orðin 3-0 snemma í síðari hálfleik. Köln tókst hins vegar að koma til baka en endurkoman hófst á 80. mínútu og þær jöfnuðu þegar mínúta var komin framyfir venjulegan leiktíma.

Leikmenn Nurnberg voru hins vegar ekki lengi að svara og tókst að skora sigurmarkið stuttu síðar. Selma var tekin af velli þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma.

Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Rosengard sem tryggði sér sæti í undanúrslitum sænska bikarsins með stórsigri gegn Gautaborg. Gautaborg spilar í þriðju efstu deild en Rosengard vann leikinn 13-0.


Athugasemdir
banner