Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 24. mars 2024 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Gerir ráð fyrir að Cancelo og Felix verði áfram hjá Barcelona
Mynd: EPA
Joan Laporta, forseti Barcelona á Spáni, gerir ráð fyrir því að halda Joao Cancelo og Joao Felix áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.

Barcelona fékk Cancelo og Felix á láni í byrjun leiktíðarinnar.

Cancelo kom frá Manchester CIty á meðan Felix kom frá Atlético Madríd.

Báðir hafa gert góða hluti á tímabilinu og vill Laporta ólmur halda báðum.

„Ég held að bæði Joao Cancelo og Joao Felix verði áfram hjá Barcelona á næsta tímabili. Ég vona að Atlético verði ekki til vandræða og ég efast um að Man City muni hindra skiptin. Það er alla vega öruggt að við munum geta framlengt lánssamningana fyrir ákveðna upphæð,“ sagði Laporta við MD.
Athugasemdir
banner
banner