Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 25. mars 2024 20:22
Brynjar Ingi Erluson
Njarðvík fær króatískan framherja (Staðfest)
Mynd: Njarðvík
Njarðvík hefur gengið frá viðræðum við króatíska framherjann Dominik Radic en hann skrifaði í dag undir samning við félagið til 2025.

Radic er fæddur árið 1996 og uppalinn hjá Dinamo Zagreb, einu besta félagi Króatíu.

Hann á að baki 158 leiki og 27 mörk í A-deildum Bosníu, Króatíu, Slóveníu og Slóvakíu.

Króatinn mun styrkja sóknarlínu gríðarlega eftir að Martin Klein yfirgaf félagið á dögunum.

Radic er mættur í æfingaferð Njarðvíkinga á Spáni þar sem hann mun kynnast liðsfélögum sínum betur.
Athugasemdir
banner
banner
banner