Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 26. mars 2024 18:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wroclaw
Byrjunarlið Íslands: Þrjár breytingar frá síðasta leik
Icelandair
Jóhann Berg er klár í slaginn.
Jóhann Berg er klár í slaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Lucas og Hákon Rafn eru í liðinu.
Andri Lucas og Hákon Rafn eru í liðinu.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Búið er að opinbera byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Úkraínu. Leikurinn hefst klukkan 19:45 að íslenskum tíma og er um úrslitaleik um sæti á EM í sumar að ræða.

Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og í opinni dagskrá á Stöð2Sport.

Landsliðsþjálfarinn Age Hareide gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Ísrael á fimmtudag. Jóhann Berg Guðmundsson kemur inn í liðið og ber fyrirliðabandið í kvöld. Þeir Andri Lucas Guðjohnsen og Jón Dagur Þorsteinsson koma einnig inn. Willum Þór Willumsson og Orri Steinn Óskarsson taka sér sæti á bekknum og Arnór Sigurðsson er fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Lestu um leikinn: Úkraína 2 -  1 Ísland


Athugasemdir
banner
banner