Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 27. mars 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Johnstone í aðgerð og missir af EM í sumar
Sam Johnstone.
Sam Johnstone.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Sam Johnstone fór í aðgerð á olnboga í dag og mun hann missa af Evrópumótinu í sumar.

Samkvæmt Daily Mail var talið nánast öruggt að hann myndi fara á Evrópumótið sem varamarkvörður fyrir Jordan Pickford, markvörð Everton.

En Johnstone, sem hefur spilað vel með Crystal Palace á tímabilinu, mun ekki spila meira á þessari leiktíð. Hann er sagður miður sín yfir þessum tíðindum.

Hann meiddist á æfingu fyrir vináttulandsleikinn gegn Belgíu sem fram fór í gær, en það var búist við því að hann myndi byrja leikinn.

Dean Henderson mun taka stöðu Johnstone hjá Palace og gæti hann um leið unnið sér inn sæti í enska landsliðinu ef hann stendur sig vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner