Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 28. mars 2024 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Efnilegasti leikmaður Arsenal skrifar undir sinn fyrsta samning
Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Ethan Nwaneri skrifaði í dag undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Arsenal, en félagið hafði betur í baráttunni við þrjú önnur félög.

Nwaneri er 17 ára gamall og talinn næsta vonarstjarna Arsenal, en hann hefur komið við sögu í einum leik á tímabilinu.

Hann spilaði sinn fyrsta leik er hann kom inn á í 3-0 sigri Arsenal á Brentford í nóvember fyrir tveimur árum, en aðeins leikið þrettán mínútur á þessari leiktíð.

Leikmaðurinn hefur verið í lykilhlutverki með unglinga- og varaliði Arsenal og einnig í U17 ára landsliði Englendinga.

Þrjú önnur félög reyndu að sannfæra hann um að yfirgefa Arsenal, en honum leist vel á það sem Mikel Arteta og félagar eru að byggja og ákvað að vera áfram.

Hann skrifaði í dag undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá félaginu og er því bundinn Arsenal næstu árin. Fagnaðarefni fyrir Arsenal að halda þessum efnilega leikmanni.
Athugasemdir
banner
banner