Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 29. mars 2024 12:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eggert vandaði sig að fela eggin
Mynd: Elfsborg

Eggert Aron Guðmundsson leikmaður Elfsborg stendur fyrir eggjaleit um páskana á heimavelli félagsins.


Félagið birti myndband af Eggerti fela egg víðsvegar um leikvanginn með yfirskriftinni 'Eggjaleit með Eggerti'.

Liðið spilar sinn fyrsta leik á nýju tímabili á mánudaginn annan í páskum gegn Varnamo og munu stuðningsmenn liðsins fá egg frá Eggerti þegar þeir mæta í sætin sín.

Eggert gekk til liðs við Elfsborg frá Stjörnunni í janúar. Liðið endaði í 2. sæti á síðustu leiktíð en Andri Fannar Baldursson er einnig leikmaður liðsins. Þá fóru Hákon Rafn Valdimarsson og Sveinn Aron Guðjohnsen frá félaginu í janúar.


Athugasemdir
banner