Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 09. ágúst 2012 15:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í 14. umferð: Ég get dansað edrú
Leikmaður 14. umferðar: Guðmundur Þórarinsson (ÍBV)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var mjög gaman. Það er algjör draumur að ná að vinna KR í fyrsta leik eftir Þjóðhátíð sem á alltaf að vera svo erfiður leikur fyrir okkur," sagði Guðmundur Þórarinsson leikmaður ÍBV við Fótbolta.net í dag en hann var öflugur á miðjunni í 2-0 sigrinum á KR í gær og er fyrir vikið leikmaður 14. umferðar hér á Fótbolta.net.

Guðmundur skoraði síðara mark ÍBV í leiknum í gær en það er annað mark hans í sumar.

,,Það er búið að stríða mér á því hvað ég hef skorað lítið en þegar maður skorar á móti KR þá segir maður öllum að þegja og hætta þessu bulli," sagði Guðmundur léttur í bragði.

,,Mér fannst fólk reyndar gera fullmikið úr þessu marki, ég heyrði lýsingar um að þetta hefði verið stórglæsilegt mark en ég var það nálægt markinu að ég kláraði þetta bara eins og ég átti að klára þetta."

Þjóðhátíð fór fram í Vestmannaeyjum um helgina en leikmenn ÍBV æfðu vel á meðan.

,,Það var æfing á laugardag og sunnudag og síðan frí á mánudag. Það var ótrúlega þægilegt að rífa sig upp og mæta á æfingu í staðinn fyrir að vera í chilli allan daginn, gera ekki neitt og borða óhollt."

Leikmenn ÍBV máttu fá sér áfengi á föstudagskvöldinu en ekki á laugardag og sunnudag. Eyþór Helgi Birgisson og Tryggvi Guðmundsson brutu þær reglur og hefur verið refsað í kjölfarið.

,,Ég er bara búinn að heyra í gegum fjölmiðla að það sé verið að refsa þeim. Mér fannst reglurnar vera nokkuð sanngjarnar, við máttum drekka eitt kvöld þeir sem vildu það. Mér fannst ekkert að þessu reglum og mér fannst þeir ekki vera stífar. Þetta skipti mig svo sem engu máli þar sem ég drekk ekki," sagði Guðmundur sem skemmti sér mjög vel á Þjóðhátíð.

,,Ég get alveg dansað þó að ég sé edrú og það var mjög gaman um helgina, þetta var geðveik helgi. Menn eru misskrautlegir þarna og ég sá einherja úr öðrum liðum og maður blikkaði þá."

Eyjamenn eru í augnablikinu sex stigum á eftir toppliði FH en næsti leikur liðsins er gegn Fylki í Árbænum á sunnudag.

,,Klisjan er að hugsa um næsta leik og síðan vitum við af þessum leik sem við eigum inni við FH, það er stórleikur þegar kemur að honum. Við unnum ekki Fylki síðast og við viljum vinna þá núna."

,,Við ætlum að reyna að koma eins stemmdir og gegn KR þar sem við byrjuðum af þvílíkum krafti. Við þurfum að gera það gegn Fylki líka, það er alltaf erfitt að spila við þá. Við þurfum að eiga A-klassa leik gegn þeim,"
sagði Guðmundur að lokum.

Sjá einnig:
Leikmaður 13. umferðar - Bjarni Guðjónsson (KR)
Leikmaður 12. umferðar - Steven Lennon (Fram)
Leikmaður 11. umferðar - Gary Martin (ÍA)
Leikmaður 9. umferðar - Atli Guðnason (FH)
Leikmaður 8. umferðar - Kristinn Jónsson (Breiðablik)
Leikmaður 7. umferðar - Christian Olsen (ÍBV)
Leikmaður 6. umferðar - Atli Guðnason (FH)
Leikmaður 5. umferðar - Sam Tillen (Fram)
Leikmaður 4. umferðar - Kennie Chopart (Stjarnan)
Leikmaður 3. umferðar - Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Leikmaður 2. umferðar - Frans Elvarsson (Keflavík)
Leikmaður 1. umferðar - Ingólfur Þórarinsson (Selfoss)
Athugasemdir
banner
banner
banner