SKÝRSLAN: SKAGAMENN INKASSO MEISTARAR 2018!
Hvað réði úrslitum?
Léleg færanýting. Liðin hefðu getað skorað mikið meira en 1-1 jafntefli niðurstaðan í fjörugum leik. Jafntefli sem gerði það að verkum að Skaginn vann deildina.
Bestu leikmenn
1. Arnar Darri Pétursson(Þróttur R.)
Arnar Darri var magnaður í þessum leik, sérstaklega í fyrri hálfleik og varði oft á tíðum frábærlega. Kom í veg fyrir að Skaginn væri 2-3 mörkum yfir í hálfleik.
2. Árni Snær Ólafsson(íA)
Árni búinn að vera frábær í allt sumar. Og hann var það líka í dag. Varði nokkrum sinnum vel og er með geggjaðar sendingar.
Atvikið
Auðvelt val. Ísak Bergmann Jóhanesson kom inná fyrir ÍA á 80. mínútu leiksins og varð þar með yngsti leikmaður mfl karla hjá ÍA frá upphafi. Gríðarlegt efni þessi strákur.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn eru Inkasso meistarar 2018! Þeir "stela" titlinum af HK þar sem þeir töpuðu fyrir Haukum. Liðin enda bæði með 48 stig en Skagamenn vinna deildina á markatölu. Til hamingju með Skagamenn!
Vondur dagur
Ekki annað hægt en að setja þetta á sóknarmenn beggja liða. Alveg með ólíkindum að það kæmu ekki fleiri mörk í þennan leik! Hellingur af færum og hálffærum og liðin áttu að skora miklu meira.
Dómarinn - 8
Solid frammistaða. Ekki erfiður leikur að dæma lengst af og flott frammistaða hjá tríóinu öllu.



