Fotbolti.net
@roggimRögnvaldur Már Helgason
Inkasso deildin - 1. deild karla
Þórsvöllur
Þór
Þór
3 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Jóhann Helgi Hannesson 13'1 - 0Jakob Snær Árnason 24'2 - 02 - 127' Sólon Breki Leifsson Alvaro Montejo Calleja 47'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Bragðlaus marka- og spjaldasúpa í Þorpinu

Hvað réði úrslitum?

Gæði Þórs. Það sýndi sig í dag afhverju Þór var í baráttunni um að komast upp og Leiknismenn nálægt fallbaráttu. Leiknir átti nánst aldrei möguleika í dag.

Bestu leikmenn

1. Alvaro Montejo

Bjó til fyrsta markið og skoraði það þriðja. Mikilvægasti leikmaður Þórs í sumar.

2. Sveinn Elías Jónsson

Var á fullu gasi í 80 mínútur og skilaði sínu eins og sannur fyrirliði.

Atvikið

Þriðja mark Þórs gerði út um leikinn og slökkti á öllum. Það var ekkert að frétta í síðari hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Ekkert, í raun. Þýðingarlítill leikur en úrslitin skila Þórsurum þriðja sætinu og Leiknir endar í því sjöunda.

Vondur dagur

Ólafur Hrannar, fyrirliði Leiknis. Fékk rautt spjald, harður dómur kannski, en gerði það að verkum að Leiknismenn sáu aldrei aftur til sólar.

Dómarinn - 6

Ekki hans besti leikur en engin stór mistök.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.