SKÝRSLAN: Grindavík vann viðureign föllnu liðanna
Hvað réði úrslitum?
Heppni og færanýting. Gestirnir voru alveg að skapa færi en nýttu þau ekki meðan að heimakonur nýttu tvo sénsa. Fótbolti er ekki flókin íþrótt og ef þú skorar ekki vinnur þú ekki.
Bestu leikmenn
1. Helga Guðrún Kristinsdóttir
Ógnaði ágætlega allan leikinn og átti góða spretti. Skoraði laglegt mark.
2. Linda Eshun
Flott í varnarleik Grindavíkur í dag. Hefur átt misjafna leiki í sumar en var öflug í dag.
Atvikið
Hálf ómögulegur reitur fyrir þennan leik sem bauð ekki uppá mikið. En til að nefna eitthvað þá er það vítaspyrnan og markið sem kláraði leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík kveður deildina með sigri em FH með tapi. Liðin samferða niður um deild og leikurinn í dsg var eingöngu uppá stolt.
Vondur dagur
Framlína FH í heild. Femgu alveg færi en fóru mjög illa með fínar stöðu. Sýndu þó að það er fótbolti í liðinu.
Dómarinn - 6
Rétt sleppur. Var ekki sannfærandi á flautunni en gerði svo sem engin hrikaleg mistök. Vítið átti líklega alveg rétt á sér.


