Fotbolti.net
@huldamyrdalHulda Mýrdal
Pepsi-deild kvenna
Origo völlurinn
Valur
Valur
3 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Dóra María Lárusdóttir 19'1 - 0Málfríður Erna Sigurðardóttir 35'2 - 0Fanndís Friðriksdóttir 55'3 - 03 - 169' Berglind Björg Þorvaldsdóttir3 - 284' Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Dómari: Bríet Bragadóttir
Myndir: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

SKÝRSLAN: Engin miskunn hjá Val þegar Íslandsmeistararnir komu í heimsókn

Hvað réði úrslitum?

Frábær spilamennska Vals. Mörkin hefðu getað orðið fleiri og Sonný bjargaði Blikum oft á tíðum frábærlega og hélt þeim inn í leiknum.

Bestu leikmenn

1. Dóra María

Kom Valskonum á bragðið með geggjuðu skoti. Leggur svo upp mark úr hornspyrnu og var solid á miðjunni. Hlín, Fanndís og Elín voru einnig sprækar í liði Vals.

2. Berglind

Vann boltann vel til baka. Hélt honum og kom honum vel frá sér. Kemur sínum konum inn í leikinn með tveimur frábærum mörkum þar sem hún klárar í fyrsta

Atvikið

Mörkin hjá Berglindi á 70 og 84 mínútu sýndu hvað hún er mikill gæðasenter. Klárar í fyrsta í báðum færunum og sýnir okkur hvað hún á gullskóinn skilið með sín 19 stykki!

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða svosem ekki mikið. Valur sýndi góðan leik þrátt fyrir vonbrigðasumar hjá þeim. Þær eru í 4.sæti einsog var vitað fyrir leik. Blikar eru enn Íslandsmeistarar, það hefur ekkert breyst.

Vondur dagur

Þetta var lokaumferðin og allir í stuði. Það sýndu allir á vellinum að það er mjög gaman í fótbolta og þvílík veisla sem við fengum. Vondur dagur? Ætli það sé ekki bara ég, borðaði of marga snúða. En svona fyrir utan það þá hefði Elín á venjulegum degi skorað svona 2 til 3 mörk, veit það best sjálf.

Dómarinn - 7

Bríet alveg ágæt í dag. Hún var fljót að taka upp gula spjaldið á 90 mínútu þegar henni fannst Hallbera tefja. Ég hélt hún hefði gleymt þeim heima hjá sér. Mjög oft hengu blikar í alltof margar mínútu á bakinu á Elínu sem hefði alveg verðskuldað spjöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.