SKÝRSLAN: Þjálfarateymið fékk sigur í kveðjuleiknum
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið léku án lykilmanna og það sást á þeirra leik. Gestirnir voru betri í fyrri hálfleik en það vantaði töluverða vigt í þeirra leik. Heimakonur komust yfir úr föstu leikatriði og voru svo öflugri í síðari hálfleiknum. Unnu að lokum sanngjarnan sigur.
Bestu leikmenn
1. Lára Kristín Pedersen
Flottur leikur hjá Láru sem eignaði sér miðjuna. Búin að eiga flott sumar og skoraði fallegt mark með skalla.
2. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Það er alltaf gaman að horfa á Þórdísi spila fótbolta. Hún var spræk á kantinum í dag. Bjó til nokkur færi og tvö mörk fyrir liðsfélagana.
Atvikið
Tveimur mínútum áður en Stjarnan kemst yfir átti Hulda Ósk skot sem sleikti þverslánna á Stjörnumarkinu og gestirnir hefðu getað náð forystunni.
Hvað þýða úrslitin?
Það var ljóst fyrir leikinn að Þór/KA myndi enda í 2. sæti og Stjarnan í 3. sætið. Úrslitin breyta því engu nema hvað að Stjörnustúlkur klára mótið brosandi og fráfarandi þjálfarateymi kveðjur með sigri.
Vondur dagur
Við höfum oft séð meiri gæði frá þessum öflugu liðum en engir leikmenn áttu eitthvað áberandi verri dag en aðrar. Skilum þessu auðu..
Dómarinn - 7,5
Tók nánast ekkert eftir honum og við vitum öll hvað það þýðir.. Hann lét leikinn rúlla vel og sanngjarnt.



