Fotbolti.net
@unnarjoUnnar Jóhannsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Ásvellir
Góðar, sól og blíða en skítkalt.
Haukar
Haukar
2 - 0
HK
HK
Elton Renato Livramento Barros 45'1 - 0Birgir Magnús Birgisson 71'2 - 0
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Hulda Margrét Óladóttir

SKÝRSLAN: Enginn bikar á loft á Ásvöllum

Hvað réði úrslitum?

Barátta Hauka var til fyrirmyndar í þessum leik, þeir köstuðu sér fyrir hvert einasta skot HK í leiknum. Klaufaskapur HK-inga að skora ekki hefur líka talsvert að segja hér.

Bestu leikmenn

1. Þórður Jón Jóhannesson

Miðjumaður Hauka var frábær varnarlega í þessum leik. Lagði mikið á sig

2. Gunnar Gunnarsson

Fyrirliði Haukanna, steig ekki feilspor í þessum leik.

Atvikið

Fyrra mark Hauka, breytti öllum taktinum í leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

HK endar í öðru sæti deildarinnar og fer upp í Pepsi deildina. Haukar enda í 8.sætinu

Vondur dagur

Ásgeir Marteinsson hefur oft verið betri, hæfileikaríkur piltur en hann fann sig engan veginn í dag og var tekinn útaf snemma í seinni hálfleik.

Dómarinn - 7,5

Elías dæmdi leikinn þokkalega, stóru atvikin virtist hann vera með rétt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.