Leik lokið!
Afturelding klára leikinn eftir power seinni hálfleik. Tryggja sér þar með titilinn. Mikil fagnaðarlæti brjótast út hjá gestunum í leikslok. En það er töluvert meiri depurð hjá heimamönnum.
90. mín
InnValdimar Brimir Hilmarsson
ÚtHalldór Bjarki Guðmundsson
89. mín
Ansi mikið panikk hjá heimamönnum og reyna að koma boltanum framávið. Enda þurfa þeir helst 3 mörk í næstu sókn.
85. mín
MAAAARK!
Wentzel Steinarr R Kamban
Ansi stórt mark hjá Wentzel og þeir fagna eftir því.79. mín
Gult spjald
Alexander Aron Davorsson
Alexander og Babic láta andlitin saman og eru báðir spjaldaðir fyrir vikið. Smá hasar í mönnum.79. mín
Gult spjald
Miroslav Babic
75. mín
MAAAARK!
Andri Freyr Jónasson
Fær hann í teignum og neglir honum inn. Ekki flókið.70. mín
Leikurinn er nokkuð rólegur. En ég reikna með að það fari að lifna yfir þessu þar sem jafntefli gerir lítið fyrir hvorugt lið eins og staðan er núna.
68. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtAlonso Sanchez Gonzalez
Spurning hvort að þessi skipting breyti leiknum
65. mín
Afturelding halda áfram að sækja á fullu. Nokkrar álitlegar sóknir hjá þeim síðustu mínútur.
55. mín
MAAAARK!
Andri Freyr Jónasson
Andri með alvöru klárslu 1-1 og allt í járnum55. mín
Afturelding byrja seinni hálfleikinn ansi sterkt. Hafa legið í sókn fyrstu 10 mínútur seinni hálfleiks. Arnar og Maggi virðast hafa messað vel yfir sínum mönnum í hálfleik.
45. mín
InnSigurður Kristján Friðriksson
ÚtAndri Hrafn Sigurðsson
Afturelding mæta með einn eldferskan í seinni hálfleik.
45. mín
45. mín
Mikið líf síðustu mínútur. Hiti í mönnum.
Það verður ansi spennandi að sjá hvað gerist í seinni hálfleik.
44. mín
Loic Ondo keyrir ansi hressilega í markmann Hattar eftir aukaspyrnu hjá Aftureldingu. Margir að kalla eftir seinna gula. Hann er væntanlega a síðasta séns.
38. mín
Afturelding hafa átt nokkrar álitlegar sóknir og eiga aukaspyrnu á hættulegum stað.
30. mín
InnHrafn Aron Hrafnsson
ÚtIgnacio Gonzalez Martinez
Nacho fer meiddur af velli og Hrafn Aron trítlar inn á völlinn.
22. mín
MAAAARK!
Daníel Steinar Kjartansson
Prinsinn úr árbænum er í stuði í dag. Ég sá ekki markið en fögnuður heimamanna er ansi mikill.19. mín
Afturelding hafa verið sterkari aðilinn síðustu mínútur. En leikurinn er mjög opinn og skemmtilegur.
12. mín
Spennustigið hjá þjálfurum liðana er ansi hátt.
Arnar Hallson þjálfari Aftureldingar er búinn að koma sér þægilega fyrir á gömlum boltapoka í boðvanginum. Á meðan Jón Karlson þjálfari hattar stendur nálægt hliðarlínu með hendur í vösum. Þess má til gamans geta að hann er í gömlum skóm af Ólafi Karli Finsen og er ansi stoltur af því
6. mín
Hattarmenn eru aðeins líflegri í upphafi leiks. Það hafa enginn hættuleg færi ennþá látið sjá sig.
2. mín
Gult spjald
Loic Cédric Mbang Ondo
Rífur niður Captain Brynjar Árnason þegar Höttur eru í álitlegri sókn.1. mín
Game on.
Afturelding hefja leik. Þeir sækja í átt að dinernum á meðan Höttur sækja í átt að Valaskjálf.
0. mín
Aðstæður á Vilhjálmsvelli eru til fyrirmyndar. Völlurinn blautur og tónlistin í botni. Bæði lið mætt út að hita upp.
Í lið heimamanna vantar vélina Martein Gauta Kárason sem er í leikbanni. En Afturelding eru með fullskipað lið eftir því sem ég best veit.
0. mín
Afturelding er í toppsætinu fyrir lokaumferðina og verður að vinna leikinn til að tryggja sér sæti í Inkasso-deildinni að ári eða treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum.
Höttur er hinsvegar í baráttunni á hinum endanum, eru í 9. sæti með 21 stig og takist þeim ekki að vinna verða þeir að treystaá að Tindastóll og Leiknir F vinni ekki sína leiki því þá eru þeir fallnir.
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Hattar og Aftureldingar í lokaumferð 2. deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum.



