SKÝRSLAN: Dramatík í úrslitaleiknum í Breiðholti
Hvað réði úrslitum?
Framan af byrjaði ÍR mun betur og voru í rauninni algjörir aular að fara inn í hálfleikinn í stöðunni 2-2, ÍR-ingar virtust fara á taugum í seinni hálfleik og gengu Magnamenn á lagið, stjórnuðu leiknum og uppskáru sigurmark sem tryggðu sæti þeirra í Inkasso árið 2019!
Bestu leikmenn
1. Gunnar Örvar (Magni)
Gunnar Örvar skoraði tvö mörk, bjó hélt boltanum vel uppi þegar Magni þurfti á að halda og lét finna fyrir sér í loftinu eins og hann gerir best.
2. Siggi Marinó (Magni)
Ég verð að gefa Sigga þetta fyrir þetta sigurmark og heildarspilarmennsku sína þó það komi fleiri til greina eins og Aron Péturs, Bjarni, Lalli Jessen, Sveinn Óli, Stubbur og nánast bara allir í Magna, vinnslan og viljinn sérstaklega í seinni hálfleik var til fyrirmyndar!
Atvikið
Hér verð ég að setja atvikið þegar Ström er að stinga sér bakvið Ívar sem að togar hann niður og ekkert dæmt í stöðunni 2-1 fyrir ÍR, ég er nokkuð viss um að þeir hafi átt að fá víti þar og þá mögulega koma sér í 3-1.
Hvað þýða úrslitin?
Magni spilar í Inkasso á næsta tímabili.
ÍR spilar í 2. deild á næsta tímabili.
Vondur dagur
Varnarleikur ÍR kom ekkert alltof vel út í mörkunum sem Magni skorar, tvö mörk koma eftir föst leikatriði og svo fær Siggi að labba alltof auðveldlega inn á teiginn hjá ÍR áður en hann leggur boltann á hægri fótinn og fer framhjá Halldóri í leiðinni og smellir honum svo í nær.
Dómarinn - 6
Fannst Egill dæma þetta þokkalega en má benda á vítið sem ÍR átti sennilega að fá í fyrri hálfleik, svo eru tvö atriði þar sem Egill hefði átt að spjalda að mínu mati en gerði ekki.



