Fotbolti.net
Sigfús Ólafur Guðmundsson
2. deild karla
Sauðárkróksvöllur
Blautt, hálfskýjað og 4 gráður
Tindastóll
Tindastóll
3 - 2
Völsungur
Völsungur
Stefan Antonio Lamanna 20'1 - 01 - 167' Elvar Baldvinsson Stefan Antonio Lamanna 72'2 - 1Stefan Antonio Lamanna 76'3 - 13 - 280' Sæþór Olgeirsson
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
95. mín
Síðustu mínútur einkenndust að Völsungsmenn voru í sókn og reyndu að jafna leikinn. Tindastóll náði að koma sér í skyndisóknir en leituðu með boltann upp í horn til að tefja. Skemmtilegur leikur hér á Sauðárkróksvelli þar sem mikið var um að vera. Völsungsmenn sýndu mikinn vilja en erfitt að spila einum færri síðustu 30 mín. Tindastólsmenn fagna ákaft í leikslok með sínum stuðningsmönnum.
Leik lokið!
Tindastóll
92. mín
InnÓðinn Smári Albertsson
ÚtArnar Ólafsson
Tindastóll
90. mín
Gult spjald

Santiago Fernandez

Gult spjald fyrir töf. Of lengi að taka útsparkið.
85. mín
Mikið að gerast í leiknum síðustu mínútur. Pirringur í mönnum, mótmæli og hrindingar sem orsaka gult spjald. Liðin skiptast á að sækja og hafa tvö síðustu mörk komið eftir fallegar fyrirgjafir sem lenda hjá framherjunum og enda í netinu
Tindastóll
82. mín
InnJóhann Daði Gíslason
ÚtArnar Skúli Atlason
Völsungur
82. mín
InnHalldór Mar Einarsson
ÚtAðalsteinn Jóhann Friðriksson
Völsungur
80. mín
MAAAARK!

Sæþór Olgeirsson (stoðsending: Elvar Baldvinsson )

Völsungur minnkar muninn. Fallegt spil og fyrirgjöf frá hægri sem finnur Sæþór sem setur hann í netið.
Tindastóll
79. mín
Gult spjald

Jónas Aron Ólafsson

Jónas fær tæklingu frá Völsungsmanni sem hann er ekki sáttur með og stendur upp og ýtir honum. Verðskuldað gult spjald.
Tindastóll
76. mín
MAAAARK!

Stefan Antonio Lamanna (stoðsending: Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson)

Glæsileg sókn hjá Tindastól. Nú komu þeir upp hægra megin. Enn og aftur endar fyrirgjöf í lappirnar á Stefan Antionio sem leggur boltann í netið. Frábært spil hjá Stólunum.
Tindastóll
72. mín
MAAAARK!

Stefan Antonio Lamanna (stoðsending: Jón Gísli Eyland Gíslason)

Glæsilegt samspil upp vinstri kantinn. Jón Gísli sendir boltann fyrir og beint í lappirnar á Stefan Antonio sem leggur hann í nær hornið.
Völsungur
67. mín
MAAAARK!

Elvar Baldvinsson

Hornspyrna hjá Völsung sem berst út í teiginn og þar er Elvar Baldvinsson sem setur hann í netið.
Völsungur
65. mín
Gult spjald

Guðmundur Óli Steingrímsson

Gult spjald fyrir mótmæli.
63. mín
Búnar að vera mjög líflegar síðustu mínútur. Völsungur lá í sókn og fékk þrjár hornspyrnur í röð sem allar enduðu í miklum darraðadansi inn í teig Tindastóls. Eftir þriðju hornspyrnuna náðu Tindastólsmenn að hreinsa út úr teignum og boltinn lenti beint í lappirnar á Stefan Antonio sem geystist af stað upp völlinn og stakk vörnina af. Sigvaldi var aftasti maður og sá ekkert annað í stöðunni en að brjóta og uppskar rautt spjald.
63. mín
Dauðafæri hjá Tindastól. Enn og aftur er Stefan Antonio kominn einn innfyrir vörn Völsungs en hann komst ekki fram hjá markmanni Völsungs að þessu sinni
60. mín
Aukaspyrna rétt fyrir utan teig Völsungs en hún fer hátt yfir
Völsungur
59. mín
Rautt spjald

Sigvaldi Þór Einarsson

Rautt Spjald! Stefan Antonio kominn einn innfyrir vörn Völsungs og Sigvaldi er rétt á eftir honum. Sigvaldi dregur Stefan niður og fær rautt spjald
Völsungur
57. mín
InnÓlafur Jóhann Steingrímsson
ÚtEyþór Traustason
Skipting hjá Völsung
49. mín
Spyrnan endar í veggnum og Tindastóll fer í skyndisókn. Stefan Antonio leikur sér með boltann rétt fyrir utan vítateig skýtur en skotið er varið en Benjamín nær frákastinu skýtur framhjá.
49. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað. Völsungur á aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateik Tindastóls
46. mín
Leikur hafinn að nýju
Tindastóll
46. mín
InnÓskar Smári Haraldsson
ÚtSverrir Hrafn Friðriksson
Breyting í hálfleik.
46. mín
Skemmtilegur leikur hér á Sauðárkróksvelli. Heimamenn búnir að vera betri aðilinn í leiknum heilt yfir en Völsungur hefur sótt í sig veðrið síðustu mínútur fyrir hálfleik og verið líklegri til að skora.
45. mín
Völsungur á síðustu sókn fyrir hálfleik. Flott fyrirgjöf og skalli sem endar rétt framhjá markinu.
43. mín
Allt annað að sjá til Völsungs. Þeir eru búnir að ógna mun meira og eiga glimrandi flott færi. Tvær hornspyrnur í röð en ná ekki að koma sér í skotstöðu.
38. mín
Santiago Fernandez, markmaður Tindastóls, fær aðvörun frá dómara leiksins fyrir að tefja. Valdi að elta bolta sem skotið var framhjá í staðin fyrir að fá boltann frá boltastrákunum sem stóðu nær honum
35. mín
Völsungsmenn að vakna og búnir að eiga ágætar sóknir sem enda þó ekki með marktækifæri. Vantar herslu muninn hjá þeim.
Tindastóll
33. mín
Gult spjald

Arnar Ólafsson

Arnar Ólafsson of seinn í boltann og tekur Berg Jónmundsson niður.
28. mín
Tindastóll heldur áfram að ógna marki gestanna. Stefan lék vel upp hægri kannt og hristi af sér tvo. Sendi svo út í teyginn en Arnar Ólafsson náði ekki að halda skotinu niðri og flaug boltinn hátt yfir.
24. mín
Gott marktækifæri hjá Völsung! Bjarki Baldvinsson á gott skot rétt fyrir utan teig sem endar rétt fram hjá stönginni. Markspyrna fyrir Tindastól
Tindastóll
20. mín
MAAAARK!

Stefan Antonio Lamanna

Mikið búið að gerast á stuttum tíma. Völsungur fær horn sem er hreinsað úr teignum og endar með aukaspyrnu sem Tindastóll fær. Aukaspyrnan tekin snöggt og Stefan stingur sér innfyrir vörn Völsungs og setur boltann fram hjá markmanni Völsungs.
Völsungur
19. mín
Gult spjald

Travis Nicklaw

Stuggar við markmanni stólanna í hornspyrnu og uppsker gult spjald
Völsungur
18. mín
Gult spjald

Eyþór Traustason

Eyþór er fyrstur í bókina fyrir brot á miðjunni. Óþarfa brot þar sem lítið var að gerast.
14. mín
Tindastóll byrjar leikinn að krafti og hefur verið meira ógnandi aðilinn í leiknum. Völsungur hefur þó reynt að nýta sér stungur inn fyrir vörn Tindastóls en hefur ekki skilað marktækifæri enn.
6. mín
Tindastóll fær dauðafæri. Benjamín Jóhannes með gott skot en Aron Dagur markmaður Völsungs sér við honum
1. mín
Gunnþór Steinar hefur flautað leikinn á. Gestirnir byrja með boltann
0. mín
Liðin eru að ganga inn á völlinn og í hljóðkerfinu hljóma leikmannakynningar.
0. mín
Þessi leikur er mikilvægur fyrir bæði lið. Lið Tindastóls er í botnbaráttunni og þarf á stigum að halda til tryggja veru sína í deildinni á næsta keppnistímabili. Mikið hefur verið fjallað um Völsung síðustu daga. Eftir úrslit úr leiknum gegn Huginn á Völsungur ennþá möguleika á að koma sér upp um deild. Það má því búast við hörku leik hér á Sauðárkróksvelli.
0. mín
Góðan dag kæru lesendur. Senn fer að hefjast leikur Tindastóls og Völsungs í 2. deild karla hér á Sauðárkróksvelli. Veðrið er frekar milt, skýjað, 4 gráður og logn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.