SKÝRSLAN: Grótta í Inkasso-deildina (Staðfest)
Hvað réði úrslitum?
Gæðin í Gróttu voru bara meiri en hjá Huganum í dag og voru það þau sem réðu úrslitum
Bestu leikmenn
1. Kristófer Orri Pétursson
Var frábær í dag, með geggjaða spyrnutækni og yfirsýn yfir öllu, Geggjaður!
2. Axel Freyr Harðarson
Var mjög góður á kantinum átti marga góða spretti og ógnaði mikið.
Atvikið
Annað mark Gróttu manna þetta hefði alveg getað dottið í báðar áttir þarna í lok fyrri hálfleiks, en hálfleiksræðan hjá Óskari gaf Gróttu kraft og settu þeir þrjú í þeim seinni.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Grótta eru komnir í Inkasso-deildina 2019!
En eins og var vitað fyrirfram þá er Huginn fallnir
Vondur dagur
Hinrik Atli Smárason
komst eitthvernveginn aldrei í takt við leikinn og var aldrei á réttum stað enda var hann tekinn útaf eftir 52. mínútna leik
Dómarinn - 5
Var heilt yfir ágætur


