95. mín
Rautt spjald
Leik lokið!
Leik lokið með sigri Vestra sem er því miður ekki nóg fyrir þá, þar sem Grótta og Afturelding eru að klára sína leiki.
92. mín
Gult spjald
Pétur Bjarnason
91. mín
Flott spil hjá Vestra, en Mack á skot beint í fangið á Aroni.
89. mín
Andri með skot yfir eftir flottan undirbúning hjá Alexander.
88. mín
Horn hjá Kára, Pétur skallar boltann á Brynjar sem á skot í pakkann, boltinn er settur aftur inní teiginnn þar sem Brenton grípur í tómt, en skot Kára fer í Andy.
85. mín
InnJón Vilhelm Ákason
ÚtGuðfinnur Þór Leósson
84. mín
Gult spjald
Andrew James Pew
Eitthvað kom uppá niðri í horni, stuðningsmenn Vestra vilja rautt á Andra Júlíusson, en Andy fær gult, sá ekki hvað gerðist.81. mín
Daniel Badu með aukaspyrnu inná teginn á Pétur sem á skot yfir.
Afturelding komnir yfir fyrir austan og því eru Vestramenn ekki á leiðinni upp í Innkasso eins og staðan er núna.
Afturelding komnir yfir fyrir austan og því eru Vestramenn ekki á leiðinni upp í Innkasso eins og staðan er núna.
80. mín
InnDaníel Agnar Ásgeirsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
77. mín
Brynjar með fyrirgjöf sem fer af fætinum á Elmari, en beint í fangið á Brenton.
Heimamenn liggja á gestunum þessa stundina.
Heimamenn liggja á gestunum þessa stundina.
75. mín
Kári með horn sem Brenton slær út í teig, boltinn hrekkur út þar sem Andri á fast skot sem fer framhjá.
71. mín
Sýndist þetta vera hárrétt.
Rautt spjald
Hammed Obafemi Lawal
Hammed fer aftan í leikmann Kára og fær rautt spjald.Sýndist þetta vera hárrétt.
68. mín
Gult spjald
Alexander Már Þorláksson
67. mín
Þórður með horn sem Andy skallar á Pétur, en Pétur skallar beint í fangið á Aroni.
66. mín
Þórður með frábæran sprett upp hægri kantinn, á sendingu á Mack, en Aron ver í horn.
65. mín
Hafþór Atli með geggjaða sendingu inná Þórð, en Aron kemst fyrir, boltinn hrekkur á Pétur sem á skot í Þórð sem er dæmdur ragnstæður.
63. mín
Hafþór Atli er allt í öllu hjá Vestra þessa stundina, vinnur boltan og kemur honum á Þórð sem á skot framhjá.
56. mín
Vestramenn eru komnir yfir, Hafþór með geggjaðan kross á fjær þar sem Pétur Bjarna mætir og setur boltann í netið!
Vestramenn á leiðinni í Inkasso eins og staðan er núna!
MAAAARK!
Pétur Bjarnason (stoðsending: Hafþór Atli Agnarsson )
MAAAAARK!!!Vestramenn eru komnir yfir, Hafþór með geggjaðan kross á fjær þar sem Pétur Bjarna mætir og setur boltann í netið!
Vestramenn á leiðinni í Inkasso eins og staðan er núna!
54. mín
Matthías með langt innkast á Pew sem flykkar boltanum inná teiginn, en heimamenn ná að koma boltanum í burtu.
51. mín
Þórður Gunnar með fínan sprett, setur boltann á Fall sem er sekúndbrotum frá því að pikka boltanum framhjá varnarmanni Kára.
Allt móment með Vestra þessa stundina!
Allt móment með Vestra þessa stundina!
50. mín
Elmar Atli með aukaspyrnu inná teig sem Pétur Bjarna skallar í átt að marki, þar mæti Daniel Badu og setur boltan í varnarmann og inn.
MAAAARK!
Daniel Osafo-Badu (stoðsending: Pétur Bjarnason )
VESTRAMENN JAFNA!!Elmar Atli með aukaspyrnu inná teig sem Pétur Bjarna skallar í átt að marki, þar mæti Daniel Badu og setur boltan í varnarmann og inn.
49. mín
Matthías Kroknes með frábæran sprett upp hægri kantinn með fyrirgjöf á fjær, en þar er enginn og sóknin rennur út.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn.
45. mín
Hálfleikur
Káramenn byrjuðu talsvert betur, en um leið og Vetramenn komust inn í leikinn komust heimamenn yfir, eftir það hefur leikurinn verið hálfgerð einstefna.
45. mín
Gult spjald
Sigurður Hrannar Þorsteinsson
Tekur Hammed niður þegar boltinn var hvergi nálægt.41. mín
Hafþór Atli með geggjað skot eftir að innkast frá Matthíasi var skallað frá, en enn ver Aron í markinu!
36. mín
Mikill darraðadans í teig Kára eftir aukaspyrnu frá Hammed en þeir ná að koma boltanum á endanum í burtu.
35. mín
Pétur með aukaspyrnuna en hún er varin.
35. mín
Þórður Gunnar að sleppa innfyrir eftir skemmtilega sendingu frá Pétri, en er tekinn niður, aukaspnra dæmd.
33. mín
Hafþór Atli með skot fyrir utan teig eftir innkast, en Aron ver vel.
32. mín
Annað horn, Andy Pew með skalla em fer beint í fangið á Aroni.
Vestramenn talsvert sterkari þessa stundina.
Vestramenn talsvert sterkari þessa stundina.
31. mín
Hafþór með frábæra sendingu inná Fall sem á skot sem fer beint í Aron og í horn.
Andy Pew á skot uppúr horninu sem bjargað er á línu.
Andy Pew á skot uppúr horninu sem bjargað er á línu.
28. mín
Mikil rangstæðulykt af þessu og Vestramenn eru ekki sáttir.
MAAAARK!
Andri Júlíusson (stoðsending: Hákon Ingi Einarsson )
Andri sleppur hér einn innfyrir á móti Brenton og setur boltan öruggt í hægra hornið.Mikil rangstæðulykt af þessu og Vestramenn eru ekki sáttir.
26. mín
Besta færi leiksins!
Pétur kemst upp að endamörkum, gerir vel í að finna Mack úti í teignum sem er aleinn, en á skot sem Káramenn bjarga á línu.
Pétur kemst upp að endamörkum, gerir vel í að finna Mack úti í teignum sem er aleinn, en á skot sem Káramenn bjarga á línu.
25. mín
Andri Júlíusson með skot yfir rétt fyrir utan teig.
23. mín
Vestri keyrir upp vinstri kanntinn, Hammed með kross á nærsvæðið þar sem Pétur og Aron í marki Kára mæta og Pétur brýtur af sér. Vestramenn að komast inn í leikinn.
18. mín
Vestri með sína lang bestu sókn hingað til, Pétur fær boltan út við hægri kannt, á frábæra sendingu upp í horn á Fall sem kemur er með slakan bolta fyrir og sókninn rennur út í sandinn.
17. mín
InnArnar Freyr Sigurðsson
ÚtSindri Snæfells Kristinsson
SIndri þarf að fara af velli eftir höfuðhöggið áðan.
14. mín
Káramenn talsvert meira með boltan hér í byrjun leiks en eru þó ekki að skapa sér neitt af viti, Vestramenn bíða átekta í skotgröfunum eftir mistökum heimamanna.
7. mín
Hákon Ingi á fyrirgjöf inná teig Vestramanna sem ALexander Már nær að taka niður og gefa boltan út í teiginn skot Káramanna er hins vegar arfaslakt og fer framhjá markinu.
Káramenn mun sterkari hér í byrjun leiks.
Káramenn mun sterkari hér í byrjun leiks.
2. mín
Pétur Bjarnason og SIndri Snæfells liggja eftir samstuð, Pétur flikkaði boltanum og Sindri skallar í hnakkann á honum en ekkert dæmt.
Þeir standa þó sem betur fer báðir upp.
Þeir standa þó sem betur fer báðir upp.
1. mín
Alexander Már sleppur hér inn fyrir strax á fyrstu mínútu en á skot yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Káramenn byrja með boltan og leik í átt að sjónum.
Fyrir leik
Liðin raða sér nú upp í línu með dómaratríóinu og takast í hendur.
Fyrir leik
Liðin eru farin að gera sig klár á varamannabekkjunum, Káramenn leika í sínum hefðbundu rauða búningum, en Vestramenn í hvítu varabúningunum sínum.
Fyrir leik
Liðin eru mætt inn í höll að hita upp.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Káramenn gera hvorki meira né minna en fimm breytingar á liði sínu frá 3-2 sigrinum á Víði. Inn koma þeir Aron Bjarki, Brynjar Snær, Hákon Ingi, Andri Júl og Guðfinnur Leó, en út fara þeir Gunnar Bragi, Arnar Freyr, Ragnar Már, Benedikt Valur og Óliver Darri.
Vestramenn gera hins vegar tvær breytingu frá 2-0 sigrinum á Þrótti Vogum. Hafþór Atli kemur inn fyrir Zoran Plazonic sem er í banni og þá kemur Brenton Muhammad í markið fyrir Daða Frey, mjög óvænt tíðindi þar á ferð!

Sameiginlegur 2.flokkur ÍA, Kára og Skallagríms varð Íslandsmeistari í vikunni og vill undirritaður óska þeim til hamingju með það.
Leikmenn Kára á 2.flokksaldri hafa lítið spilað með liðinu upp á síðkastið þar sem áherslan var lögð á 2.flokkinn, en þar sem tímabilinu í 2.flokki er lokið er spurning hvort margir af þessum efnilegu leikmönnum komi inn í hópinn á hjá Kára í dag?

Zoran Plazonic miðjumaður Vestra verður ekki með í dag, en hann fékk að líta tvö gul spjöld í síðasta leik með mjög stuttu millibili, mjög svo heimskulegt og er það mikið högg fyrir Vestra en Zoran hefur leikið vel í sumar.
Líklegast þykir að annað hvort Hafþór Atli Agnarsson eða Daníel Agnar Ásgeirsson komi inn í liðið í hans stað.
Líklegast þykir að annað hvort Hafþór Atli Agnarsson eða Daníel Agnar Ásgeirsson komi inn í liðið í hans stað.
Fyrir leik
Fyrir umferðina eiga alls fjögur lið möguleika á að vinna sér inn sæti í Inkassodeildinni að ári, Afturelding með 42 stig, Grótta með 42 stig, Vestri með 41 stig og Völsungur sem vann öruggan 3-0 sigur á Huginn í vikunni með 40 stig. En það þýðir að Vestramenn þurfa nauðsynlega á sigri að halda og vonast til að úrslit í leikjum Aftureldingar eða Gróttu verði þeim hagstæð.
Afturelding á útileik gegn Hetti, Grótta heimaleik við Huginn og Völsungur útileik gegn Tindastól.
Afturelding á útileik gegn Hetti, Grótta heimaleik við Huginn og Völsungur útileik gegn Tindastól.
Fyrir leik
Liðin sitja í þriðja og fimmta sæti, Vestramenn með 41 stig en Káramenn með 38.
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn.
Hér fer fram bein textalýsing frá leik Kára og Vestra í síðustu umferð 2. deildar karla.
Hér fer fram bein textalýsing frá leik Kára og Vestra í síðustu umferð 2. deildar karla.

Pétur Bjarnason
Pétur fær sitt annað gula og rautt þegar leik er lokið.Sá ekki hvað gerðist en skilst að boltanum hafi verið sparkað í hann og hann brugðist illa við.