Leikmenn heimtuðu að þjálfarinn yrði rekinn en nú hefur hann komið liðinu í úrslitaleik HM

Jorge Vilda, landsliðsþjálfari Spánar.

Mynd: Getty Images

Vilda hefur gert frábæra hluti.

Mynd: Getty Images

Jorge Vilda, landsliðsþjálfari Spánar.

Mynd: Getty Images

Jorge Vilda þjálfari spænska kvennalandsliðsins segir að liðið væri ekki komið í úrslitaleik HM ef fótboltasamband Spánar hefði ekki sýnt honum stuðning þegar leikmenn liðsins snerust gegn honum á síðasta ári.
Spánn komst í úrslitaleikinn með því að vinna Svíþjóð í morgun en tæpt ár er síðan fimmtán leikmenn landsliðsins skrifuðu undir tölvupóst og kröfðust þess að Vilda yrði rekinn.

Leikmennirnir sögðu að þjálfaratíð Jorge Vilda hefði haft neikvæð áhrif á andlega heilsu sína og að þær myndu hætta að spila fyrir landsliðið nema hann yrði rekinn. Spænska sambandið stendur með Vilda og sagði það ekki í verkahring leikmanna að reka eða ráða þjálfara.
„Þessar aðgerðir eru langt frá því að vera til fyrirmyndar og eru utan við gildi fótbolta og íþrótta. Að taka þessar ákvarðanir eru ekki á valdsviði leikmanna," sagði spænska sambandið í yfirlýsingu í fyrra.
Það borgaði sig svo sannarlega að sýna Vilda stuðning. Þær sem skrifuðu undir bréfið voru settar til hliðar en þrjár af þeim hafa síðan snúið aftur og eru í HM hópnum; Mariona Caldentey, Aitana Bonmati og Ona Batlle.
„Ég hef allan tímann haft stuðning Luis Rubiales forseta sambandsins. Án þess stuðnings væri ég ekki hér. Við höfum forseta sem er með hugrekki og treystir mér og mínu teymi. Við erum ánægðir með árangurinn," sagði Vilda á fréttamannafundi.
Spánn mun á sunnudaginn leika í úrslitaleiknum, gegn Ástralíu eða Englandi sem mætast klukkan 10 á morgun.