Mayenda hjá Sunderland til 2030 (Staðfest)
Eliezer Mayenda hefur framlengt samning sinn við Sunderland til ársins 2030 en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25098 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Eliezer Mayenda hefur framlengt samning sinn við Sunderland til ársins 2030 en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Ipswich Town hefur nælt í sænska landsliðsmanninn Jens Cajuste á láni frá Ítalíumeisturum Napoli út tímabilið.
Spænska félagið Villarreal hefur tilkynnt komu Thomas Partey til félagsins þvert gegn vilja stuðningsmanna félagsins sem höfðu engan áhuga á að fá hann.
Fram hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í Bestu deildinni því Sara Dögg Ásþórsdóttir er komin á láni frá Lengjudeildarliði Fylkis. Sara Dögg er fædd árið 2004. Hún er miðjumaður sem á að baki 82 KSÍ leiki og hefur skorað í þeim tíu mörk. Hún hefur hins vegar ekki spilað leik síðan í febrúar í fyrra.
Slóvakinn Martin Dubravka hefur gert eins árs samning við Burnley en hann kemur frá Newcastle United. Dubravka er 36 ára og lék alls 179 leiki í öllum keppnum fyrir Newcastle. Hann lék lykilhlutverk fyrir liðið þegar það vann deildabikarinn á síðasta tímabili.
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við West Ham. Hún kvaddi félagið með tárin í augunum í myndbandi á samfélagsmiðlum. Samningur Dagný við félagið er runnin út en henni bauðst að vera áfram. Hún ákvað hins vegar að semja ekki.
Thomas Müller er genginn til liðs við kanadíska félagið Vancouver Whitecaps sem leikur í bandarísku MLS-deildinni.
Tindastóll hefur fengið Guðrúnu Þórarinsdóttur á láni frá Breiðabliki út tímabilið.
Burnley hefur staðfest komu Lesley Ugochukwu til liðsins frá Chelsea. Hann skrifar undir fimm ára samning við nýliðana í úrvalsdeildinni. Fabrizio Romano segir að kaupverðið sé um 25 milljónir punda.
Heung-min Son hefur kvatt Tottenham en hann er farinn til LAFC í MLS deildinni í Bandaríkjunum eftir tíu ár hjá félaginu. Bandaríska félagið borgar 20 milljónir punda fyrir leikmanninn en hann er dýrasti leikmaður í sögu MLS-deildarinnar. Son gekk til liðs við Tottenham frá Leverkusen árið 2015. Hann spilaði 454 leiki og skoraði 173 mörk. Hann var gerður að fyrirliða árið 2023.
Marc Guiu, framherji Chelsea, er genginn til liðs við nýliða Sunderland út komandi tímabil. Guiu er níundi leikmaðurinn sem Sunderland fær til sín í sumar. Sunderland spilar í úrvalsdeildinni á komandi tímabili eftir að hafa komist upp í gegnum umspilið í Championship á síðasta tímabili. Guiu gekk til liðs við Chelsea frá Barcelona síðasta sumar. Hann kom við sögu í 16 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili og skoraði sex mörk, öll í Sambandsdeildinni þar sem Chelsea stóð uppi sem sigurvegari.
Nottingham Forest hefur fengið skoska landsliðsmarkvörðinn Angus Gunn og skrifaði hann undir eins árs samning. Gunn lék 35 leiki í Championship-deildinni fyrir Norwich City á síðasta tímabili en yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út í maí.
AC Milan hefur fengið til sín svissneska miðjumanninn Ardon Jashari frá Club Brugge í Belgíu. Hann er 23 ára og var bæði valinn besti leikmaðurinn og besti ungi leikmaðurinn í belgísku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann gengur í raðir AC Milan fyrir um 37 milljónir evra og verður í treyju númer 30.
Leiknir Reykjavík hefur selt sóknarmanninn Stefan Bilic til serbneska félagsins Vozdovac í Belgrad. Stefan er 18 ára gamall og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki á síðasta ári, þar sem hann kom við sögu í sjö leikjum í Lengjudeildinni.
Everton hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Kiernan Dewsbury-Hall frá Chelsea fyrir um 28 milljónir punda. Dewsbury-Hall er 26 ára gamall og hefur skrifað undir fimm ára samning við Everton til sumarsins 2030. Dewsbury-Hall er uppalinn hjá Leicester og er fimmti leikmaðurinn sem Everton fær til sín í sumar. Áður hafði Everton fengið Charly Alcaraz, Thierno Barry, Mark Travers og Adam Aznou. <i>„Ég er í hreinskilni sagt mjög spenntur, fjölskylda mín líka. Það er mikil spenna,"</i> segir Dewsbury-Hall sem segir að stjórinn David Moyes og nýr leikvangur félagsins séu meðal þess sem hafi verið aðdráttarafl. <i>„Eftir að ég ræddi við stjórann og hann sýndi mér metnaðinn, nýja leikvanginn og allt það, þá fann ég að þetta væri rétta félagið. Ég hef spilað á öllum völlum ensku úrvalsdeildarinnar og þessi er hreinlega magnaður."</i>
Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir hefur samið við ítalska félagið Fiorentina og var kynnt í morgun.
Íslenski sóknarmaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson er búinn að skrifa undir samning við Gwangju FC í Suður-Kóreu. Félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni en þar segir að Hólmbert sé fullkominn í lið Gwangju sem var að leitast eftir því að bæta við sig sóknarmanni með hæð og góðar afgreiðslur fyrir framan markið.
Enski miðjumaðurinn Bobby Clark er genginn til liðs við Derby á láni frá RB Salzburg. Clark hefur ekki verið lengi hjá Salzburg því hann gekk til liðs við félagið frá Liverpool síðasta sumar fyrir tíu milljónir punda. Hann á fjögur ár eftir af samningi sínum hjá austurríska félaginu.
Hægri bakvörðurinn Callum Brittain er genginn til liðs við Middlesbrough frá Blackburn. Þessi 27 ára gamli Englendingur gerir fjögurra ár asamning við Middlesbrough. Hann lék í þrjú ár hjá Blackburn en hann var liðsfélagi Arnórs Sigurðssonar sem yfirgaf Blackburn og gekk til liðs við Malmö í vetur.
Enski miðjumaðurinn Tyler Morton er genginn til liðs við Lyon frá Liverpool fyrir 15 milljónir punda. Morton er 22 ára gamall og er uppalinn hjá Liverpool. Hann spilaði 14 leiki fyrir liðið. Hann var áður á láni hjá Blackburn og Hull í Championship deildinni en var hjá Liverpool á síðustu leiktíð þar sem hann kom við sögu í fimm leikjum. Samkvæmt heimildum Sky Sport fær Liverpool 20 prósent af næstu sölu.