Tilboðum í Maguire hafnað - Sesko velur Old Trafford - Villa búið að ná samkomulagi um Guessand
   fim 07. ágúst 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tindastóll fær Guðrúnu frá Blikum (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Tindastóll
Tindastóll hefur fengið Guðrúnu Þórarinsdóttur á láni frá Breiðabliki út tímabilið.

Guðrún er fædd árið 2008 og er uppalin hjá Breiðabliki. Hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Augnabliki árið 2023 og var einnig hjá liðinu árið 2024.

Hún steig sín fyrstu skref með Breiðabliki í sumar en hún kom við sögu í fimm leikjum í Bestu deildinni og einum leik í Mjólkurbikarnum.

Hún er komin með leikheimild og getur spilað með Tindastól í kvöld þegar liðið heimsækir Stjörnuna.


Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 12 10 1 1 46 - 8 +38 31
2.    FH 11 8 1 2 26 - 12 +14 25
3.    Þróttur R. 11 8 1 2 24 - 11 +13 25
4.    Þór/KA 11 6 0 5 19 - 18 +1 18
5.    Valur 12 4 3 5 14 - 18 -4 15
6.    Fram 11 5 0 6 15 - 24 -9 15
7.    Tindastóll 11 4 1 6 17 - 20 -3 13
8.    Stjarnan 11 4 0 7 12 - 24 -12 12
9.    Víkingur R. 11 3 1 7 18 - 27 -9 10
10.    FHL 11 0 0 11 5 - 34 -29 0
Athugasemdir
banner