FRÉTTIR25.05.2026, 17:30
Manchester City hefur ákveðið að heiðra Pep Guardiola með því að nefna stúku eftir honum, enginn var heiðraður á Hlíðarenda og FH hefur aldrei byrjað verr.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR25.05.2026, 09:30
Brasilíski miðjumaðurinn André er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Wolves þrátt fyrir fall úr úrvalsdeildinni.
FRÉTTIR24.05.2026, 09:30
Spánverjinn Carlos Cuesta hefur fengið hrós fyrir að hafa náð flottum árangri með nokkuð dapurt Parma lið á ítalska deildartímabilinu.
FRÉTTIR23.05.2026, 21:20
Eins og greint hefur verið frá er Manchester United búið að gera tveggja ára samning við Michael Carrick eftir magnaða frammistöðu hans sem bráðabirgðaþjálfari félagsins á seinni hluta enska úrvalsdeildartímabilsins.
FRÉTTIR23.05.2026, 20:20
Hansi Flick þjálfari Barcelona hefur tjáð sig um risafregnirnar varðandi Pep Guardiola. Hann er að hætta í starfi sínu sem aðalþjálfari Manchester City eftir heilan áratug.
FRÉTTIR23.05.2026, 13:00
Sverrir Ingi Ingason mun spila undir nýjum stjóra á næstu leiktíð en Rafa Benítez hefur verið rekinn frá Panathinaikos eftir aðeins sjö mánuði í starfi.
FRÉTTIR23.05.2026, 08:00
Þjóðverjinn Lukas Podolski spilar sinn síðasta leik á ferlinum í dag. Hann greindi frá því á samfélagsmiðlum í gær að skórnir væru á leið upp á hillu.
FRÉTTIR22.05.2026, 16:30
David Alaba mun yfirgefa Real Madrid í sumar eftir fimm ára veru hjá félaginu. Félagið staðfesti tíðindin fyrr í dag.
Hann gekk til liðs við Real sumarið 2021 og hefur síðan þá spilað 131 leik fyrir félagið. Hjá Real vann hann ellefu titla, þar af Meistaradeildina tvisvar og LaLiga tvisvar.
Austurríkismaðurinn hefur verið að glíma við mikil meiðsli undanfarin þrjú ár. Stjörnublaðamaðurinn segir mörg félög á höttunum á eftir Alaba fyrst hann er samningslaus.
FRÉTTIR22.05.2026, 10:27
Manchester City hefur staðfest að síðasti leikur Pep Guardiola með stjórnartaumana hjá félaginu verður gegn Aston Villa á sunnudag.
Undir stjórn Guardiola vann City sautján stóra titla, þar á meðal sex Englandsmeistaratitla á tíu tímabilum. Þá vann hann Meistaradeildina með liðinu. Á hans síðasta tímabili vann City FA-bikarinn og deildabikarinn.
<i>„Ekki spyrja mig út í ástæðuna fyrir því að ég er að hætta. Það er engin ástæða, en innst inni veit ég að þetta er rétti tíminn. Ekkert varir að eilífu,"</i> segir Guardiola.
FRÉTTIR22.05.2026, 10:08
Michael Carrick verður áfram með Manchester United, en hann hefur hafa skrifað undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á að framlengja um eitt ár.
Carrick tók við United af Ruben Amorim í byrjun árs, rétti úr kútnum og hefur nú tryggt þriðja sætið.
Undir stjórn Carrick hefur United unnið ellefu af sextán leikjum sínum. Úrvalsdeildin tilnefndi sex stjóra sem stjóra tímabilsins og var Carrick einn af þeim.
Ekkert lið í efstu deild hefur náð í fleiri stig en United frá því Carrick tók við liðinu 13. janúar, en liðið hefur safnað 36 stigum síðan þá.
FRÉTTIR21.05.2026, 18:17
Marija Radojicic er komin aftur til Fylkis eftir að hafa leikið með Spartak Subotica í efstu deild serbneska boltans í vetur.
FRÉTTIR21.05.2026, 17:56
Völsungur hefur fundið nýjan aðalþjálfara eftir að Patrick De Wilde var rekinn fyrir rúmum mánuði síðan. Sá heitir Borja Martin Iglesias, hann var síðast partur af þjálfarateyminu hjá unglingaliði Eibar og hefur einnig þjálfað hjá Osasuna.
FRÉTTIR21.05.2026, 10:10
ÍA hefur fengið markvörðinn Jón Sölva Símonarson frá Breiðabliki á undanþágu vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. ÍA kaupir Jón Sölva af Blikum, en félagið hafði líka reynt að gera það í vetur.
Árni meiddist á sunnudag og verður frá næstu sex til átta vikurnar vegna ristarbrots. Þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður og varamarkvörður ÍA, Isak Theodor Eidem, er fæddur árið 2009, fékk ÍA undanþágu hjá KSÍ til að fá markvörð inn utan glugga.
FRÉTTIR21.05.2026, 08:30
Brentford er búið að ganga frá kaupum á bráðefnilegum varnarmanni sem kemur til félagsins úr röðum RB Salzburg.
FRÉTTIR20.05.2026, 16:30
Spænska blaðið <i>Marca</I> er með mynd af spænska miðjumanninum Rodri á forsíðu sinni í mogun. Rodri er lykilmaður Manchester City.
Blaðið segist hafa heimildir fyrir því að Rodri (1996) vilji fara til Real Madrid vegna þess að Pep Guardiola sé að hætta sem stjóri City. Það verður ekki annað sagt en að þeir tveir séu algjörir lykilmenn hjá félaginu.
FRÉTTIR20.05.2026, 06:00
Sporting CP endaði í öðru sæti í portúgölsku deildinni á nýliðnu tímabili og er strax byrjað að styrkja hópinn fyrir næstu leiktíð.
FRÉTTIR19.05.2026, 15:46
Jason Daði Svanþórsson (1999) mun yfirgefa Grimsby þegar samningur hans við félagið rennur út. Þetta staðfestir enska félagið með færslu á samfélagsmiðlum.
Jason var í tvö ár hjá félaginu en hann var keyptur frá Breiðabliki sumarið 2024.
Hann er eldfljótur kantmaður sem var í algjöru lykilhlutverki þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari 2022. Hann er uppalinn í Aftureldingu og hélt í Breiðablik eftir tímabilið 2020.
FRÉTTIR19.05.2026, 06:00
Eins og greint hefur verið frá er Dani Carvajal á förum frá Real Madrid eftir tímabilið.
FRÉTTIR18.05.2026, 19:09
Hansi Flick svaraði spurningum eftir sigur gegn Real Betis í næstsíðustu umferð spænska deildartímabilsins í gær.
FRÉTTIR18.05.2026, 14:22
Hansi Flick hefur framlengt samning sinn sem þjálfari Barcelona til ársins 2028 með möguleika um eins árs framlengingu.
Flick tók við Barcelona af Xavi sumarið 2024 og hefur hann unnið spænska titilinn í tvígang á fyrstu tveimur tímabilum sínum.