Benítez rekinn frá Panathinaikos (Staðfest) - Sverrir fær nýjan stjóra

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sverrir Ingi Ingason mun spila undir nýjum stjóra á næstu leiktíð en Rafa Benítez hefur verið rekinn frá Panathinaikos eftir aðeins sjö mánuði í starfi.

TENGT EFNI
Verður Neestrup næsti stjóri Sverris?
Benítez var ráðinn í október en liðið var þá í 7. sæti deildarinnar. Liðið lauk keppni í deildinni á sunnudaginn með 2-2 jafntefli gegn PAOK og endar í 4. sæti og er á leið í Sambandsdeildina.
Benítez er 66 ára gamall Spánverji en hann gerði garðinn frægan með Liverpool á sínum tíma þar sem liðið vann Meistaradeildina undir hans stjórn. Hann hefur einnig stýrt liðum á borð við Everton, Real Madrid, Inter og Chelsea.
Jacob Neestrup, fyrrum stjóri FC Kaupmannahafnar, hefur verið orðaður við starfið.
Sverrir Ingi gekk til liðs við Panathinaikos frá Midtjylland árið 2024 en hann kom við sögu í 31 leik í öllum keppnum á þessu tímabili.