Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   lau 23. maí 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hinn fertugi Podolski leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Mynd: EPA
Þjóðverjinn Lukas Podolski spilar sinn síðasta leik á ferlinum í dag. Hann greindi frá því á samfélagsmiðlum í gær að skórnir væru á leið upp á hillu.

Þessi fertugi sóknarmaður átti farsælan feril en hann vann deild og bikar með Bayern og enska bikarinn með Arsenal. Hann var þá heimsmeistari með Þýskalandi árið 2014.

Hann lék einnig með Köln, Inter, Galatasaray, Vissel Kobe, Antalyaspor og er í dag leikmaður Górnik Zabrze í Póllandi. Podolski er meirihlutaeigandi í félaginu.

Liðið spilar sinn síðasta leik á tímabilinu í dag þar sem liðið fær Radomiak Radom í heimsókn. Liðið er í 2. sæti, sex stigum á eftir meisturunum í Lech Poznan.


Lukas Podolski video marking his retirement
by
u/Mulderre91 in
soccer

Slapp
banner