Fotbolti.net
25.05.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Lykilmaður semur við Úlfana þrátt fyrir fall (Staðfest)

Lykilmaður semur við Úlfana þrátt fyrir fall (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn André er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Wolves þrátt fyrir fall úr úrvalsdeildinni.
André er öflugur varnartengiliður sem hefur verið lykilmaður í liði Úlfanna frá komu sinni til félagsins fyrir tveimur árum.

Hann hefur verið orðaður við ýmis sterk lið í enska boltanum og víðar en heldur tryggð við Úlfana með nýjum samningi. Það er mikilvægt fyrir félagið að halda einhverjum lykilmönnum til að berjast um að fara aftur upp um deild.

André, sem verður 25 ára í sumar, er með 13 landsleiki að baki fyrir Brasilíu en er ekki í hópnum sem fer á HM í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.