Fotbolti.net
22.05.26 - 16:30
Kári Snorrason

Alaba yfirgefur Real Madrid (Staðfest)

David Alaba.

David Alaba.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

David Alaba mun yfirgefa Real Madrid í sumar eftir fimm ára veru hjá félaginu. Félagið staðfesti tíðindin fyrr í dag.

Hann gekk til liðs við Real sumarið 2021 og hefur síðan þá spilað 131 leik fyrir félagið. Hjá Real vann hann ellefu titla, þar af Meistaradeildina tvisvar og LaLiga tvisvar.

Austurríkismaðurinn hefur verið að glíma við mikil meiðsli undanfarin þrjú ár. Stjörnublaðamaðurinn segir mörg félög á höttunum á eftir Alaba fyrst hann er samningslaus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.