Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   mán 18. maí 2026 19:09
Ívan Guðjón Baldursson
Flick: Verður erfitt að fylla í skarð Lewandowski
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hansi Flick svaraði spurningum eftir sigur gegn Real Betis í næstsíðustu umferð spænska deildartímabilsins í gær.

Þetta var jafnframt síðasti heimaleikur Barcelona svo fagnað var dátt eftir sigurinn þar sem Börsungum tókst að verja Spánarmeistaratitilinn á milli ára.

Flick var spurður um ýmislegt eftir lokaflautið gegn Betis, meðal annars Robert Lewandowski, Joao Cancelo og Raphinha.

„Það verður ekki auðvelt að fylla í skarð Lewandowski, hann hefur verið besti framherji heims síðustu tíu ár. Það verður alls ekki auðvelt að fylla í skarðið. Við verðum að reyna að kaupa einhvern en það verður erfitt að finna réttan leikmann," sagði Flick.

„Við þurfum framherja sem passar við okkar leikstíl og hugarfar, en það mikilvægasta er að hann skori mikið af mörkum."

Joao Cancelo stóð sig vel á lánssamningi hjá Barca en snýr aftur til Al-Hilal í Sádi-Arabíu þar sem hann á eitt ár eftir af samning.

„Það verður ekki auðvelt að halda Cancelo en Deco er að vinna í því. Gæðin hans skinu í gegn undir lok tímabils og ég hef miklar mætur á honum. Hann er frábær leikmaður og ég vona að við getum haldið honum."

Cancelo verður 32 ára í lok maí áður en Raphinha verður þrítugur í desember. Brasilíski kantmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við félagaskipti til Sádi-Arabíu.

„Raphinha verður áfram, hann er ótrúlegur leikmaður. Hann er einn af okkar mikilvægustu mönnum og ef ég fæ að ráða þá verður hann hérna í mörg ár.

„Hvað sem gerist í félagaskiptaglugganum í sumar þá er ég viss um að við verðum áfram með stórkostlegan leikmannahóp á næstu leiktíð."


   18.05.2026 14:22
Flick framlengir við Barcelona (Staðfest)

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner
banner