
Sjötta árið í röð sem fyrirliðinn fer frá Real Madrid


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Eins og greint hefur verið frá er Dani Carvajal á förum frá Real Madrid eftir tímabilið.

TENGT EFNI
„Er táknmynd alls þess sem Real Madrid vill standa fyrir“
Carvajal er fyrirliði Real Madrid og vekur það athygli að þetta er sjötta árið í röð sem fyrirliði félagsins heldur á önnur mið.
Þessi tíska byrjaði eftir brottför Sergio Ramos fyrir fimm árum, en Ramos hafði verið fyrirliði Madrídinga í sex ár þegar hann yfirgaf félagið sumarið 2021.
Marcelo fékk fyrirliðabandið og bar það í eitt ár áður en hann fór til Olympiakos sumarið 2022 og næstur til að taka við bandinu var Karim Benzema, sem hélt til Sádi-Arabíu ári síðar.
Næst var röðin komin að Nacho Fernández sem fylgdi Benzema til Sádi-Arabíu eftir að hafa verið fyrirliði tímabilið 2023-24 og þá tók Luka Modric við bandinu en skipti yfir til AC Milan í fyrrasumar.
Carvajal er því sjötti fyrirliði Real Madrid sem yfirgefur félagið á jafn mörgum árum.

TENGT EFNI
Modric fer frá Real Madrid (Staðfest)


Mynd: EPA



